Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Gagnrýni

Big Kahuna - Skiptracker

Já þetta lag er núna í 1. sæti á listanum... mér finnst þetta gott lag einhvað sem maður getur hlustað á aftur og aftur. En söngurinn er doldið útí hött... en það er það besta við það!! Mér finnst söngurinn mjög svalur væri samt ekkert á móti því ef það væri gefinn meiri kraftur í hann... ég heyri ekkert ruglað við gítarinn.... en stundum finnst mér trommurnar einhvað svo skringilegar seinna í laginu. Ég hef reyndar ekki hundsvit fyrir trommum en finnst þær stundum missa taktinn. Á öruglega að vera þannig skomm samt FLOTT!! Ég dýrka þetta hehe

Einkunn: 8
Höfundur: Aðalheiður Arna Björgvinsdóttir

Einfaldlega frábært lag hér á ferð. Drengirnir eru greinilega búnir að þroskast mikið sem lagasmiðir frá því í fyrra.
Söngurinn er vægast sagt frábær. Enginn tilgerð í gangi og melódíunar einfaldlega ómótstæðilegar.
Vel útfærðar gítarfléttur, skringlegar trommur (á jákvæðan hátt) og bassinn fyllir vel upp.
Einfaldlega flott melódía, eitthvað sem flestar rokk.is sveitir mættu að taka sér til fyrirmyndar.

Einkunn: 10
Höfundur: Gunnar Ragnarsson

Uppáhaldslagið mitt þessa stundina ! vá hvað þetta er mikið æði, fínar upptökur, vel spilað og ílla mergjuð rödd. Mér finnst þetta vera
ógeðslega skemmtilegt lag og greinilega undir´áhrifum góðra hljómsveita :) til hamingju þið og eyrun mín þakka kærlega...

Einkunn: 10
Höfundur: Andri Freyr Arnarsson

Enþá passar þessi brotthætta rödd geðveikt inn í þetta, finnst hún bara ótrúlega flott.
Gítarinn tekur mig inn í placebo og interpol bæði í einu, mjög flott...... en þegar það er farið úr clean kaflanum og beint í overdrive minnir það mig ótrúlega á eitthvað, gæti verið bara bull í mér.

Lagið mætti vera búið á 3min því að lagið endurtekur sig bara eftir effecta kaflan sem væri mjög góður endir.

Einkunn: 7
Höfundur: Elís Már Guðvarsson

Þetta er virkilega flott laglína sko, nánast fullkomin en söngurinn er virkilega brothættur á tímabili en er vel sungin í meirihlutanum af laginu... Ég veit ekki hvað ég get gefið þessu, það er nefnilega að fara í taugarnar á mér hvað röddin er brothætt og hálffölsk á tímabili...

Einkunn: 8
Höfundur: Björn Axel Jónsson

Arrg. Ég vissi nú allveg að þeir gætu eitkvað þessir ágætu drengir en ekki bjóst ég nú við þessu jafnvel eftir að hafa heirt þá á tónleikum. Þetta er frábært lag í alla staði og gef ég því hæstu einkunn sem ég hef nokkurn tíman gefið síðan að ég varð gagnrýnandi hér á þessari bráðskemmtilegu síðu.

Einkunn: 9
Höfundur: Hreiðar Már Árnason

FOKVÁ !! þetta er töff ! ég er algjörlega að fíla þetta mikið !! þetta er eitthvað nýtt. söngurinn frumlegur og skemtilegur mann langar bara til að kissa kauðann (je). Ég er eiginlega bara í sjokki ég var bara alls ekki að búast við svona flottu frikki var eitthvað að tala um þá, frikki í bob, og ég sá nafnið og ákvað að tjékka á þessu og bara hreinlega datt í lukkupottinn ! ég gef þessu lagi 10 því að þetta er nýja uppáhaldshljómsveitin mín og ég er bara alls ekkert að grínast með þetta tékkið á þessu heita brauði ný bakað og gott ! trommurnar svo taktfastar en samt svo skrítnar og flottar. úff. (ég á kjóljakkaföt)

Einkunn: 10
Höfundur: Heimir Gestur Eggertsson

 

 

tómt

besti vefur i heimi

Leikjanet.is


Staðan

  • Flytjendur: 1549
  • Lög : 4596
  • Gagnrýni : 984
  • Myndbönd : 75